Erla Perla blaðrar

Gaman að sjá þig hér

23.03.2008 17:53:51 / erlaperla

PÁSKABLOGG

 

Það er búið að vera frekar mikið að gera hjá minni upp á síðkastið, og ekki hafa það verið nein skemmtileg verkefni, hér á heimilinu kom upp njálgur fyrir ca mánuði og svo fyrir 2 vikum kom upp lús  aaarrrrggggg............. alveg magnað svona lagað, þannig að maður gerir ekkert annað en að þrífa og þvo eins og það er nú skemmtilegt og svo er alltaf verið að skoða húsið okkar en ekkert gerist, voða gaman hjá mér sem sagt hehe.. en það er fólk að koma að skoða húsið á morgun sem að er búið að koma að skoða það áður svo að við krossum fingur.8|

 

Vona nú samt að við séum laus við lús og njálg í bili og þrifin sem að fylgja því.

 

Svo er ég að fara í aðgerð 1 apríl ( vonandi ekki aprílgabb), en ég á að fara til Give sem að er ca. hálftíma keyrsla héðan að kvöldi 31. mars og síðan verð ég keyrð með Falk(sjúkraflutning)  að morgni 1. apríl hingað til Vejle og skorin og þegar að ég er orðin vel vöknuð eftir aðgerðina þá keyrir Falk mig aftur til Give og þar ligg ég inni í 1 til 2 daga  einkennilegt alveg hehe......:$

 

Annars erum við búin að eiga fína páska hérna, Jóna Magga kom hingað seint á fimmtudagskvöldið og var svo að fara núna áðan, við systurnar skelltum okkur með strákana í Skærup zoo á föstudaginn og var bara alveg ágætt, síðan fórum við systur á göngugötuna nánar tiltekið í HM , síðan í Føtex og Bilka að versla í gær og svo fórum við í Vejle kunstmuseum í dag.   Annars erum við bara búin að taka því rólega hérna um helgina og borða íslensk páskaegg í dag jamm jamm......   svo gott..... takk mamma og pabbi  :haha:  og Jóna Magga fyrir að koma með þau :haha:

 

Svo er bara kominn vetur hérna, en það er búið að vera mjög kalt og er alltaf að kólna meira og það er líka smá snjór hérna sem að mér finnst voðalega skrítið.

 

Svo langar mig bara að biðjast afsökunar á því hvað ég er búin að vera að löt að blogga, kannski verð ég duglegri á meðan að ég verð í veikindaleyfinu og kannski kem ég barnalandssíðunni í gang aftur :^)

 

Well,  leyfi ykkur að heyra fljótlega í mér, að minnsta kosti þegar að ég er komin heim úr aðgerðinni.


» 7 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 31533
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 485 dögum
Á ég afmæli ;)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 475 dögum
Siggi 30 ára
Könnun
Borðar þú kavíar ( ekki þennan í túbunum )
Já og finnst hann góður
1 atkvæði

Já en finnst hann ekkert spes
2 atkvæði

Nei finnst hann ógeð
2 atkvæði

Hef aldrei smakkað hann
1 atkvæði

Kavíar hvað er það
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6