Erla Perla blaðrar

Gaman að sjá þig hér

29.01.2007 19:57:37 / erlaperla

hvað er þetta með ykkur 50 heimsóknir og 3 comment ????

Ein pínu móðguð *-)

En þið megið alveg tjá ykkur meira sko ......haha

Vildi bara segja það við ykkur sem að leggið leið ykkar í Bónus í Stykkishólmi næstu daga að láta ykkur ekki bregða, NÚ ???????????    Ja hann Siggi minn verður að vinna þar OG NEI við erum ekki að skilja hahahaha..... en ástæðan fyrir því er að það er ekkert að gera í vinnuni hérna hjá okkur og þá var hann bara sendur heim ásamt öllu starfsfólkinu fyrir utan mig og verkstjórann, og vegna þess að enginn veit hvað þetta stopp er lengi ákvað Siggi skella sér, en hann hefur saknað ykkar allra svo mikið ég meina enginn að spyrja hvað þeir eigi að hafa í matinn eða að biðja hann um uppskriftir.
Svo að ég og drengirnir sitjum bara eftir með sárt ennið því að við hefðum sko ALVEG viljað fara en svona er þetta, Jói Kalli er náttúrulega í skólanum og ég í vinnu svo að það er ekki hægt núna en verður vonandi hægt sem fyrst.

Svo átti Grímur Axel afmæli 23. janúar þannig að hann er orðinn 6. ÁRA vá stór kall bara,
Í gær héldum við afmæli fyrir hann, ferngum 3 börn og 5 fullorðna í heimsókn voða gaman og allt að sjálfsögðu Íslendingar
Kjellingin bakaði bara heilan helling og sit því uppi með fullt af kökum núna en við verðum nú ekki lengi að klára þetta.

Annars er ekkert að frétta, bið bara að heilsa ykkur í bili

P.s. Þegar að þið farið í Bónus verið þá góð við hann Sigga minn


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 20:10:59 / erlaperla

LESTARLÚIN KONA TALAR !!!!!

Já ég ætlaði víst að vera duglegri að blogga hehe... hummm.......:S er nokkuð svo langt síðan ???

Áramótin voru örugglega þau leiðinlegustu sem að við höfum upplifað, maturinn var vondur og svo var lítið gert eftir hann, og svo get ég sagt ykkur að danir ( allavega hérna í kringum okkur ) eru ekkert smá skotglaðir en það var verið að skjóta upp frá því fyrir jól og alveg vel fram í janúar og það var engin smá skothríð hérna á gamlárskvöld vov... ég sagði við Sigga " vá ég held bara að þeir séu jafnslæmir og íslandingar ef ekki bara verri" he he ... en ég get nú sagt ykkur að ég hefði ekki fyrir mitt litla líf þorað út á miðnætti.

Svo er janúar búin að vera svona la la, maður er bara að reyna að koma sér aftur af stað eftir fríið og svo er bara endalaus rigning hérna og maður er orðin svolítið þreyttur á því, en það breyttist nú í morgun en þá kólnaði og það byrjaði að snjóa, rosalega spennandi fyrsti snjórinn í vetur en hann var svo lítill að það er nú varla til að tala um, en allavega erum við voðalega hamingjusöm yfir því að fá smá tilbreytingu ;)

Já og svo fór ég í vinnupartý um helgina !
Ég fór á laugardagsmorgunin með nokkrum vinnufélögum með lest til Hirts9hals sem að er fyrir þá sem ekki vita efst á Jótlandi og tók þetta ferðalag 3 og hálfan tíma, og þar tóku vinnufélagar okkar þar á móti okkur og við fórum að skoða vinnsluna þeirra þar, svo fórum við að skoða eitthvað fiskasafn ( með lifaði fiskum og selum ) sem að er voðalega flott og mig langar að fara með strákana þangað eitthverntíman. Svo um kvöldið borðuðum við voða fínan mat á hótelinu sem að við gistum á og ég verð nú að segja að ég var pínu útundan þar, ég er farin að skilja flest allt í dönsku en þegar að það eru margir að tala í einu þá bara dett ég alveg út ..... hehehe.... en þau hugsuðu nú öll voða vel um mig, voru alltaf að spurja hvort að ég skildi þau og svona ;)
Eftir matinn var svo farið í keilu og nördinn ég hafði aldrei farið í keilu áður svo að þeir sem að lentu með mér í liði voru nú ekki sáttir við ÁTTUM sko að vinna, en það var nú meira í gríni en alvöru en VÁ hvað mér fannst þetta gaman , er strax farin að suða í Sigga að koma í keilu en það eru 2 staðir hérna í Vejle sem að hægt er að fara í keilu. Eftir keiluna og svo bara setið og spjallað og drukkið eins og dönum einum er lagið ;O  síðan fórum við á eitthvern pöbb þar sem að hægt var að dansa eða átti að vera hægt, ég held að ég hafi aldrei verið jafn kramin við að reyna að dansa hahahahahahaha....... svo fór maður bara dauðþreyttur að sofa, svo fór maður á fætur kl.9 á sunnudagsmorgunin því að við áttum að leggja af stað með lestinni um 10, svo þegar að það fór að síga á seinnni hluta ferðarinnar haldið þið að lestin hafi ekki bara gefist upp, já ég er ekki að djóka þetta var nú meira vesenið, eftir margar tilraunir við að komast af stað (oftast færðist lestin 5 til 10 í hvert skipti) þá var ákveðið að bakka til baka á stoppistöðina (kannski 100 m) og skoða málin betur og svo á endanum var tilkynnt að lestin færi ekki lengra og farþegar vinsamlegast beðnið að fara með hraði í aðra lest, gaman gaman, vitiði ég var orðin svo þreytt í rassinum á að sitja svona lengi en okkur seinkaði um næstum því klukkutíma út af þessu þannig að við vorum næstum 4 kl á leiðinni og þar að auki allir sem að maður var að ferðast með þreyttir og þunnir ;)
Svo var bara vinnan í morgun og ég er að drepast í bakinu eftir þessa lestarferð svona er maður nú orðin gamall pjúffffff......

Jæja ég vona að ég hafi svalað eitthvað þorsta ykkar á bloggi frá mér
YFIR OG ÚT    ERLA


» 3 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 31540
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 485 dögum
Á ég afmæli ;)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 475 dögum
Siggi 30 ára
Könnun
Borðar þú kavíar ( ekki þennan í túbunum )
Já og finnst hann góður
1 atkvæði

Já en finnst hann ekkert spes
2 atkvæði

Nei finnst hann ógeð
2 atkvæði

Hef aldrei smakkað hann
1 atkvæði

Kavíar hvað er það
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6