Erla Perla blaðrar

Gaman að sjá þig hér

22.05.2006 22:27:03 / erlaperla

tralala......

..... já það er alltaf sama stuðið hjá mér, ne.. ég er náttúrulega búin í öllum prófunum og er búin að fá að vita að ég náði ársreikningunum og tölfræðinni en er ekki ennþá búin að fá að vita úr rekstrarstjórnininni en ég er nokkuð viss um að ég sé fallin þar en það verður bara að koma í ljós fæ líklega að vita það í byrjun næstu viku :S
Ég er byrjuð að vinna smá aftur, er að pakka rækju, já maður endar alltaf á sama stað aftur 8|   Ég er að vinna með 4 pólverjum, 1 rússa og 1 íslending (svolítið skondið) en þetta er allt hörkuduglegt fólk og gott að vinna með því ;)
Annars er nú lítið spennandi búið að vera að gerast hjá mér bara búin að vera að gera vorhreingerninguna mína og allt sem að ég var búin að vera geyma þangað til að ég yrði búin í prófunum aaaahhhhhaa.... það er svo gott að vera búin í þeim ég er eitthvað svo afslöppuð, get farið og hangið í tölvunni án þess að vera með samviskubit yfir því að vera ekki að læra:haha:
Jæja ætla að fara að skoða eitthvað gáfulegt á netinu fyrir svefnin, læt eyra í mér fljótlega allavega þegar að ég er búin að fá að vita síðustu einkunina ok bæbæ Erillinn.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 09:48:50 / erlaperla

2 próf frá og 1 eftir

Þá er kellingin búin með tölfræðiprófið, og það gekk svona la la get ekki sagt að mér hafi fundist það erfitt en ég er samt annsi hrædd um að ég ná ekki hárri einkunn, náði ekki einu sinni að klára allt prófið og btw þá var þetta 4 tíma próf :whut: en ég vona að ég hafi nú náð þessu samt 8|
Svo er bara 1 próf eftir jibbí...... en ég fer í rekstrarstjórnun á föstudaginn, get ekki beðið eftir því þegar að ég labba út úr því prófi 8) og svo voru nú eihverjar gellur búnar að lofa okkur Söru að þær myndu taka á móti okkur með bjór þegar við kæmum úr prófinu hummm..........
Við fórum á Akranes á laugardaginn og heimsóttum Huldu og co. og það var alveg æðislegt að geta stoppað aðeins þar, er komið svo langt síðan við höfum gert það, svo fórum við Siggi í afmæli til Rögnu frænku sem að var bara mjög fínt, svo gaman að hitta frænkur og frændur og svo að sjálfsögðu fjölskylduna mína, þetta var rosalega flott afmæli hjá henni Rögnu enda ekki við öðru að búast frá henni, hún er svo myndarleg:haha::haha:  En á meðan fengu strákarnir að vera hjá Huldu og Gísla og það fannst þeim ekki leiðinlegt, þau voru öll svo góð að leika sér saman og fóru út að leika í grímubúningum æðislegt stuð, svo þegar það kom að því að fara heim voru þeir nú ekkert svakalega glaðir og Gunnar Óli var nú bara sofnaður hjá Gísla svo að við þurftum að bera hann út í bíl ;)  Á leiðinn heim sváfu þeir allir eins og englar eftir ánægjulegan dag.

Annars er nú ekki mikið að frétta, ég fer kannski að vinna aftur í Agustson í sumar við að pakka af því hann Michal (sem að býr niðri hjá mér) sem hefur verið að pakka er meiddur og getur ekki unnið næstu vikurnar, en það verður að koma í ljós hvernig fer, af því að mig vantar barnapíu frá 12, típíst stráskarnir eru ný hættir að vera á leikskólanum eftir hádegi og þá býðst manni vinna:klikk:
Jæja Erla farðu nú að læra8|
BLESS BLESS Erillinn

» 12 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 22:42:44 / erlaperla

1 próf búið og 2 eftir

Jæja þá er fyrsta alvöru prófið búið og þvílíkur léttir :D , já ég var sem sagt í prófi í ársreikningum í morgun og ég að mér hafi bara gengið allt í lagi en btw þá kveið mér mest fyrir að fara í þetta próf og var viss um það fyrir nokkurm dögum að ég mundi falla en núna held ég bara að ég hafi slefað yfir 58| en eins og að þið sjáið í skoðunar könnuninni minni þá eru þar 4 próf en ég var í einu þeirra á mánudaginn fyrir viku, en það er próf sem að gildir 20% af heildareinkunn í rekstrarstjórnun, þetta var Microsoft Project próið mitt og hvað haldiði að kellingin hafi fengið ........ vúhú 10 já ég er sko ekki að ljúga.
En annars er svo sem ekkert mikið að segja í bili vildi bara láta heyra aðeins í mér, en í fyrramálið byrja ég að læra fyrir tölfræði svo að ég tala bara í % og allskonar merkjum sem að ég nenni ekki að setja hérna inn núna, en gæti gert við tækifæri ykkur til ánægju og yndisauka:klikk:

Þar til næst (eftir næsta próf  kannski)
Erla Perla

» 6 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
18. mars 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 31523
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 484 dögum
Á ég afmæli ;)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 474 dögum
Siggi 30 ára
Könnun
Borðar þú kavíar ( ekki þennan í túbunum )
Já og finnst hann góður
1 atkvæði

Já en finnst hann ekkert spes
2 atkvæði

Nei finnst hann ógeð
2 atkvæði

Hef aldrei smakkað hann
1 atkvæði

Kavíar hvað er það
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6