Usss... maður er alveg hættur að blogga eftir að maður fór á Facebook, og svo núna þegar maður ákveður að blogga þá er best að reyna að rifja upp hvað hefur gerst upp á síðkastið.
Gunnar Óli er búinn að læra að hjóla.
Gunnar Óli er með lausa tönn.
Gunnar Óli fer í ferð með leikskólanum í 3 daga í næstu viku.
Gunnar Óli hættir í leikskólanum fyrir miðjan júlí og byrjar í skólanum í ágúst.
Jói Kalli fer í ferðalag með frístundarklúbbnum sínum til Svíðþjóðar um mánaðarmótin júní / júlí.
Jói Kalli fer til Íslands 7.júlí og kemur aftur heim 11.ágúst.
Grímur Axel fer í ferð með SFO um mánaðarmótin júní / júlí ( á sama tíma og Jói Kalli )
Erla hættir í vinnunni seinnipart sumars.
Erla er á fullu við að leita sér að nýrri vinnu.
Erla var í klippingu í gær og er yfir sig ánægð með útkomuna.
Húsið okkar er á sölu og það var skoðað í gær, í síðustu viku og í þar síðustu viku svo að við krossum putta og vonum að eitthvað gerist.
Við eru búin að skrá okkur hjá leigufélagi á biðlista eftir á fá íbúð og vonum að það lukkist.
Siggi er sköllóttur núna og mér finnst það nú ekki töff, en ég elska hann nú ekkert minna fyrir það 
Ég sakna Íslands og fjölskyldu minnar óendanlega mikið og er gráti næst að hafa ekki efni á að koma HEIM.
jæja eigum við ekki bara segja þetta gott í bili.
Erla kveður með kærlig hilsen 
já og svo setti ég inn myndir i myndasöfn.