Erla Perla blaðrar
Börn ;)
Könnun
Er fólk alveg hætt að skoða bloggsíður ?
0 atkvæði

nei
0 atkvæði

ekki ég
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 2
19.12.2010 21:08:01 / erlaperla

Myndir fyrir mömmu og pabba :)

Jæja kæru foreldrar mínir, ég er búin að setja inn myndir í myndasöfn undir nafninu "Sumarbústaður" endilega kíkið á þær :d

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.03.2010 21:18:51 / erlaperla

Hvernig bloggar maður nú aftur ???

Vá ég fékk allt í einu óstjórnlega mikla löngun til að blogga hehe... fyndið þar sem að allir eru löngu hættir að blogga og þá líklega allir hættir að skoða bloggin 8|

En hvað um það .... 
Af okkur er svo sem lítið að frétta, við erum voðalega ánægð yfir því að það er að koma vor loksins, Danmörk + snjór er bara ekki alveg að gera sig hehe....

Við erum að fara að flytja í stærri íbúð um páskana og mikið hlakka ég til að fá meira pláss og Jóa Kalla hlakkar mikið til að fá loksins sitt eigið herbergi, það er ekkert auðvelt að vera 13 ára og þurfa að hanga með tveimur litlum bræðrum sínum í herbergi.

Strákunum gengur bara ágætlega í nýja skólanum og allir 3 eru búnir að eignast nokkra góða vini.

Annars var ég að spá í að vera dugleg að blogga þó að það væri nú ekki nema bara fyrir mig sjálfa, það er nefnilega ótrúlega gaman að lesa gömlu bloggin sín ;)

Ef þú lest þetta þá endilega kommemtaðu:haha:



» 14 hafa sagt sína skoðun

23.05.2009 09:02:27 / erlaperla

Bara svona smá fyrir foreldra mína :)

Usss... maður er alveg hættur að blogga eftir að maður fór á Facebook, og svo núna þegar maður ákveður að blogga þá er best að reyna að rifja upp hvað hefur gerst upp á síðkastið.

Gunnar Óli er búinn að læra að hjóla.

Gunnar Óli er með lausa tönn.

Gunnar Óli fer í ferð með leikskólanum í 3 daga í næstu viku.

Gunnar Óli hættir í leikskólanum fyrir miðjan júlí og byrjar í skólanum í ágúst.

Jói Kalli fer í ferðalag með frístundarklúbbnum sínum til Svíðþjóðar um mánaðarmótin júní / júlí.

Jói Kalli fer til Íslands 7.júlí og kemur aftur heim 11.ágúst.

Grímur Axel fer í ferð með SFO um mánaðarmótin júní / júlí ( á sama tíma og Jói Kalli )

Erla hættir í vinnunni seinnipart sumars.

Erla er á fullu við að leita sér að nýrri vinnu.

Erla var í klippingu í gær og er yfir sig ánægð með útkomuna.

Húsið okkar er á sölu og það var skoðað í gær, í síðustu viku og í þar síðustu viku svo að við krossum putta og vonum að eitthvað gerist.

Við eru búin að skrá okkur hjá leigufélagi á biðlista eftir á fá íbúð og vonum að það lukkist.

Siggi er sköllóttur núna og mér finnst það nú ekki töff, en ég elska hann nú ekkert minna fyrir það :)

Ég sakna Íslands og fjölskyldu minnar óendanlega mikið og er gráti næst að hafa ekki efni á að koma HEIM.

jæja eigum við ekki bara segja þetta gott í bili.

Erla kveður með kærlig hilsen :)

já og svo setti ég inn myndir i myndasöfn.



» 6 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 09:05:51 / erlaperla

16. Febrúar 2009

Er í dag og núna á hann Jói Kalli minn afmæli og er ordinn 12 ára jibbíííííííí............

Bara svona ad láta ykkur vita hvad ég á fullordinn dreng eda réttara sagt ungling ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2009 18:45:16 / erlaperla

Þá erum við loksins búin að eignast dóttur ;)

Já við fengum litla hundaskvísu í dag dansk / svensk gårdhund og hún er bara svo sæt ;)  Núna situr hún bara í fanginnu á Jóa Kalla og horfir á sjónvarpið með strákunum, voðalega stillt.
Ég er búin að setja smá myndir af henni í myndasöfn undir janúar og febrúar 2009. Endilega kíkja svo er líka mynd af mér þar í nýju vesti sem að mamma mín var að prjóna handa mér og ég er mjög ánægð með það :)

Annars verð ég í frí fram á föstudag og strákarnir eru í fríi í næstu viku, en það er vertarfrí í skólanum, þannig að við höfum það bara huggulegt hérna heima með sætu hundastelpunni okkar.

þar til næst, kveðja Erla


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.02.2009 15:03:09 / erlaperla

jólin eru víst löngu búin ...

Það er víst orðið mjög langt síðan að ég jarmaði eitthvað hingað inn, og svo þegar að það líður svona langt á milli man maður hreinlega ekkert til að segja frá :/  Það er búið að vera ágætt að gera í vinnunni í janúar en ég veit ekki hversu mikið verður að gera fram á vor ? svo eru ég og strákarnir í fríi í viku 7 sem sagt frá 7 til 15 feb. veit ekki hvað við komum til með að gera af okkur en það kemur bara í ljós þegar þar að kemur :)

Annars er það í fréttum að okkur er líklega að fjölga hérna í fjölskyldunni.... hahaha....nei ég er ekki ólétt... en við erum líklega að fara að ná í lítinn og sætan hund sem að sárvantar heimili á þriðjudaginn og erum við bara mjög spennt, þetta er passlega lítill hundur ekki of lítill svo að strákarnir drepa hann ekki úr hræðslu og ekki svo stór að maður gæti orðið hræddur við hann bara voða sætur :)  Set inn myndir af honum fljótlega þegar að hann er kominn í okkar hendur.

Gunna Hanna tengdamóðir mín kom til okkar um miðjan janúar og var í eina viku, strákunum fannst það voða gaman að hitta ömmu sína, því miður gátum við lítið gert með henni, vorum náttúrulega að vinna og svo var skítakuldi úti, en svona er þetta í janúar :)

Annars er lítið búið að gerast í janúar, finnst þetta ferlega leiðinlegur mánuður hérna í DK, kalt og dimmt, sólin er kannski búin að skína 5 sinnum og kannski í 15 mín í hvert skipti ömurlegt, ég er sko farin að hlakka til vorsins en það eru rúmir 2 mánuðir þangað til :/

Langaði bara að láta vita smá af mér, allavega að ég væri enn á lífi ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 23:01:37 / erlaperla

Gleðileg jól

Já þá eru jólin loksins komin og það er bara æðislegt.

Okkur líður bara ágætlega hérna og erum bara í afslöppun, borðum góðan mat, nammi, spilum tölvuleiki, horfum á sjónvarp, höngum á netinu og hvílum okkur.

Úff ég nenni ekki að skrifa meira í bili ( er greinilega í of mikillli afslöppun )

Endilega kíkið í myndasöfn ég er búin að setja inn 4 ný albúm.




» 9 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 22:16:09 / erlaperla

Loksins kom ég mér í ad ....

Setja inn smá myndir hérna á bloggid, endilega skodid í myndasøfn.

Annars er allt gott ad frétta, Gudrún og Addi fá íbúdina sína á morgun svo ad thad er flutningur um helgina, ég ætla bara ad vera hérna heima ( heppin hehe )med alla krakkana og reyna ad gera eitthvad skemmtilegt med theim ;)

Svo er madur bara farin ad huga ad jólunum og øllu sem ad theim fylgir eins og jólahreingerningin, jólabaksturinn, skrifa jólakort, kaupa jólagjafir og pakka theim inn,
Vonandi verdur thetta huggulegur tími ég er allavega farin ad hlakka til.

Munid ad skoda myndirnar.

Góda nótt
Erla

» 12 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 09:42:28 / erlaperla

30.10.2008

Hérna er svo sem allt ágætt að frétta, eins og flestir vita þá erum við stór fjölskylda hérna en það er vegna þess að Guðrún býr hérna hjá okkur með börnin sín þau Særúnu og Alexander, Guðrún er að vinna með mér, Alexander er í leikskólanum með Gunnari og Særún er í móttökubekk hinu megin í bænum, þau verða hérna hjá okkur á virkum dögum en fara heim til sín í Haderslev um helgar þangað til að þau fá íbúðina sína í Brejning  ( sem er lítill bær hérna rétt hjá ) þann 15 nóv. Við erum bara búin að hafa það frekar huggulegt hérna saman en það er sko nóg að gera á svona stóru heimili en sem betur fer er Guðrún þrusu dugleg svo að ég hef ekki yfir neinu að kvarta og svo er alveg ágætt að hafa vinkonu sína hérna til að spjalla við, því að ég verða að viðurkenna að ég er nú búin að sakna þess mikið frá því að ég flutti hingað út að geta ekki bara hitt vinkonur mínar bara svona til að spjalla eða eitthvað álíka J

 

Það er búið að vera nóg að gera í vinnunni hjá mér alveg frá því að ég kom úr sumarfríi,  og það verður vonandi nóg að gera áfram. Það er ekki sama sagan með vinnuna hjá Sigga, þar er voðalega rólegt og hann er ekki að næla sér í neina yfirvinnu því miður.

 

Skólinn gengur rosalega vel hjá Grími og blómstrar hann bara ;)

Hjá Jóa Kalla gengur líka ágætlega en hann er mjög dugleur að gleyma hinu og þessu, bókum og heimanámi hummm..... en það er nú allt að lagast.

 

Við skelltum okkur í Lególand á laugardaginn og var það bara alveg ágætt en frekar kalt að mínu mati hehe...... en rosalega gaman eins og oftast þar.

 

Svo erum við loksins búin að búa okkur til Facebook síður við Siggi og finnst okkur mjög gaman að finna gamla vini þar og fyndið að sjá hvað fólk er orðið fullorðið sérstaklega þeir sem að maður hefur ekki hitt í mörg ár ;)

 

Jæja ég ætla að láta þetta duga í bili en vonandi verður aðeins styttra á milli blogg hjá mér næst.

 

Med venlig hilsen Erla


» 14 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 15:26:10 / erlaperla

19. júlí 2008

Langar að byrja þetta blogg á að óska litla bróður mínum til hamingju með 25 ára afmælið.  Elsku Villi ( ungi maður ) til hamingju með daginn frá mér og mínum strákum ;)

 

Annnars er allt ágætt að frétta hérna, mamma er búin að vera hjá okkur síðan á mánudaginn og verður í viku í viðbót.

Veðrið er nú ekki búið að leika við okkur síðustu dagana aðallega ský vindur og rigning inn á milli, en líklega á að koma betra veður í næstu viku.

 

Við erum búin að fá nýja æðislega bílinn okkar og erum mjög sátt.

 

Jæja mig langaði bara að láta Villa vita að værum ekki búin að gleyma honum. :haha:


» 15 hafa sagt sína skoðun

11.07.2008 12:44:36 / erlaperla

11. júlí 2008

Ég get nú alveg ýmindað mér að allir séu löngu hættir að nenna að kíkja hingað inn :/

 

En ætli það sé ekki best að ég segi eitthvað frá hvað við erum búin að vera að bralla upp á síðkastið hummm......

 

Guðrún, Addi, Særún og Alexander komu hingað 23 júní og voru hérna hjá okkur í rúma viku og það þótti okkur sko ekki leiðinlegt, við hérna á heimilinu vorum reyndar öll í okkar “vinnum”  til 27 júní, en þá komumst ég og strákarnir í langþráð sumarfrí ;)

 

Við fórum í Legoland 28. júní og skemmtum okkur rosa vel eins og oftast þegar að maður fer þangað J

 

Daginn eftir fórum við í Skærup minizoo sem að er hérna rétt hjá og það var líka mjög fínt.

 

1.júlí fórum við svo þegar að Siggi var búin að vinna niður til Haderslev og hjálpa Guðrúnu og Adda að flytja dótið þeirra úr gámnum og UPP Á 5 HÆÐ  og ó mæ god :/

Maður var eiginlega búin þegar að maður var kominn upp á 3 hæð, þannig að í restina fékk Guðrún þá snillarhugmynd að ég kæmi með kassa upp á 3 hæð og hún tæki þá svo þaðan upp á 5 hæð, og það var töluvert auðveldara ( en nógu erfitt samt ), Siggi og Addi tóku alla stóru og þungu hlutina fjúffff..... og það voru sko engin smá átök hehe...

En þetta kláraðist nú á endanum, enda eins gott því að við þurftum að drífa okkur heim svo að ég gæti farið með Jóa Kalla út á flugvöll í Billund.

Þar fékk ég að fara alla leið inn með honum og bíða þangað til að hann væri kominn í loftið, hann var að sjálfsögðu rosalega spenntur að fara til Íslands að hitta pabba sinn, ömmu Guffý og Martein, þannig að það var ekkert erfitt að kveðja hann.

 

Siggi er búin að vera í fríi þessa viku og veðrið tók vel á móti honum en það var reyndar búið að vera mjög gott veður seinnipartinn í síðustu viku upp í 30 stiga hiti, en á laugardaginn var eiginlega of heitt 35 stiga hiti ef ekki meira þegar heitast var, Siggi var úti að klippa hekkið og það rann af honum svitinn það var svo heitt og svo endaði hann á að klippa rafmagnssnúruna í sundur ( erum með rafmagnshekkklippur ) svo að hekkið er ennþá hálfklippt, því að það er búið að vera frekar leiðinlegt veður í vikunni svo reyndi hann að fara að slá grasið í gær og þá fór að rigna þannig að grasið er hálfklipp líka, jahá við eigum sko flottasta garðinn á svæðinu hóst..........

 

Annars var veðrið langverst hérna á mánudaginn en þá voru BRJÁLAÐAR þrumur og eldingar og rosaleg rigning og seinnipartinn þá hvessti mjög skyndilega alveg rosalega og það fór allt af stað hérna úti, við erum t.d. með sólhlíf  sem að fauk af stað og Siggi þurfti að fara út til að bjarga henni og hann var gegnblautur þegar að hann kom aftur inn, en fyrir utan þennan dag er búið að vera svona ok veður en eitthver smá rigning inn á milli á hverjum degi.

 

Á þriðjudaginn fórum við og fjárfestum í nýjum fjölskyldubíl Citroen C4 picasso, diesel bíll, 2008 árgerð með dvd í hnakkapúðum, dökkum rúðum, dráttarkrók,   hann er rosalega rúmgóður og þá sérstaklega fyrir strákana og vá þeir voru sko hrifnir af honum þegar að við sáum hann og ennþá meira þegar að við prófuðum hann og voru ekkert voðalega sáttir að fá hann ekki strax, en við fáum hann 17 júlí svo að það eru nokkrir dagar þangað til, en við erum öll mjög spennt ;)

 

Á mánudaginn byrjar svo Siggi aftur að vinna og mamma kemur í heimsókn og ætlar hún að vera hjá okkur í heila 12 daga og spenningurinn er mikill á þessu heimili að fá ömmu Sóley í heimsókn , og við ætlum sko að hafa það huggulegt með henni.

 

Svo fáum við svo enn eina íslensku heimsóknina í ágúst en það eru Anna, Palli, Halldóra og Bjarni og það verður sko gaman að fá þau hingað.

 

Vona að þið hafið það gott

 

Kveðja Erla sem á skilið að fá verðlaun fyrir að vera duglegasti bloggari ársins J


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 06:08:27 / erlaperla

Vorferðir

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur síðustu daga,  á fimmtudaginn síðasta fórum við fjölskyldan með leikskólanum hans Gunnars í sumarbústaða hverfi ( rétt hjá þar sem að við bjuggum fyrst ) og þar er svona stórt hús "skóli" sem að er leigður út fyrir svona stóra hópa, þar sulluðu börnin í sjónum og léku sér og síðan borðuðu allir saman en maður átti að koma með eitthvað á svona sameiginlegt hlaðborð og ég verð bara að segja að mér fannst minn matur bestur af öllum réttunum ;)

 

Á föstudaginn fór ég með Jóa Kalla á sama stað í bekkjarferð og var það rosa gaman, það var grillað, sungið, drukkið kaffi, spjallað, grillaðir sykurpúðar yfir báli og svo sat maður hjá bálinu voða notalegt,  ég sá Jóa Kalla nú ekki mikið, en það var alveg fullt að gera hjá honum,  krakkarnir byrjuðu auðvitað á því að fara í sjóinn, stelpurnar rétt brettu upp á buxurnar og skræktu þvílíkt þegar að það kom smá sjór á tærnar á þeim á meðan strákarnir voru lengst út í sjó hehe.... bara fyndið, sumir krakkarnir og foreldrar þeirra gistu þarna um nóttina en við Jói Kalli fórum heim rétt fyrir 11 um kvöldið, og Jói Kalli hoppaði beint í sturtu og svo upp í rúm þegar að við komum heim :haha: 

Á laugardaginn höfðum við það bara næs heima, löguðum til og vorum svo bara út í sólinni, röltum á Mc. Donalds og borðuðum þar og svo horfðum við á Júró saman en Grímur og Gunnar sofnuðu í miðri keppni, svo það voru aðallega ég og Jói sem að vorum að horfa á og guð minn góður ég var við að pissa í buxurnar ég hló svo mikið að rússneska laginu eða réttara sagt að þessum "æðislega" skautadansara.

 

Á sunnudaginn fórum við með bekknum hans Gríms á svona náttúruleiksvæði, þar var farið í ratleik, grillar, búið til snore brauð, borðaðar kökur og inn á milli léku börnin sér, þetta var mjög fínt og að sjálfsögðu vann okkar lið ratleikinn ;) en það voru ég, Jói, Grímur, Gunnar, og 2 bekkjasystur hans Gríms og 2 foreldrar ( en foreldrarnir máttu ekki taka þátt), en ég held að krakkarnir hafi notið góðs af því að hafa Jóa Kalla með, enda var hann líka voða stoltur því að hann gerði sér fulla grein fyrir því hvað hann hjálpaði mikið :d

Þegar að við komum heim fóru strákarnir bara út í garð að leika og mamma þeirra lagðist í sólbað enda er hún orðin voðalega brún ;)

 

Í gær fór mín svo í klippingu og litun, og er bara mjög sátt með útkomuna, í dag er ég svo að fara til tannlæknis og það er skömm frá því að segja að ég hef ekki farið til tannlæknis í 11 ár ( VÁ ), enda er ég með smá svona kvíðahnút í maganum hehe...

 

Er þetta ekki bara gott í bili ?

 

Hei endilega kommenta og ég verð að segja að ég er mjög forvitin hverjir eru að hugsa um að koma í heimsókn í sumar hummmmm........... ( já ég hef alltaf á bágt, á mjög erfitt með að hemja forvitnina )

 

Erla "brúna"

 


» 18 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 20:23:44 / erlaperla

3 maí 2008

Langar bara að senda Guðrúnu og Adda mínar innilegustu hamingjuóskir með daginn.
Vildi óska að ég hefði geta komið og notið dagsins með ykkur, en ég verð bara að bíða þangað til að þið komið hingað, sem ég btw hlakka mikið til :d


Við hérna á Fousbjergvej 16 erum búin að vera úti í garði í mest allan dag í ca 20 stiga hita og reyna að fá hann til að skarta sínu besta, en það tekur víst meira en einn dag svo við verðum bara að halda áfram á morgun ;)

Man ekkert meira í bili, langaði aðallega að blogga til að óska brúðhjónunum til hamingju með daginn ( ein greinilega mjög svekkt yfir að hafa ekki komist )

Enn og aftur til lukku Guðrún og Addi.

» 13 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 05:25:48 / erlaperla

Fréttaskot frá Vinding

Erla er bara að öll að koma til skal ég segja ykkur ;)

 

Fórum í nýju verslunarmiðstöðina hérna í Vejle á laugardaginn rosa flott.

 

Og þar keypti ég mér fína saumavél á 400 kr. ( danskar )

 

Grímur er að læra að hjóla loksins.

 

Ég fer örugglega að vinna aftur eftir ca. viku.

 

Það er næstum komið sumar hérna, hitinn var um 20 stig í gær.

 

Og með sumarkomunni fylgja auðvitað geitunar aarrggggg....

 

Ég fékk eitt að bestu knúsum sem að ég hef fengið þegar að Gunnar Óli kom heim eftir “sumarbúðirnar”.

 

Já allir hérna á heimilinu hafa það bara gott eins og er.

 

Mig langar að spyrja út frá könnunni minni hverjir ætla að heimsækja mig í sumar ??

 

Farvel Erla geitungahatari


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 09:52:15 / erlaperla

Smá grín ;)


Endilega horfið á þetta myndband, það er bara fyndið :p

http://www.youtube.com/watch?v=YOfZPZJHnKg


Annars er allt fínt að frétta hérna, ég er bara nokkuð hress og eyði öllum deginum alltaf í að reyna að finna mér eitthvað að gera hehee.......

Núna er Gunnar Óli í "sumarbúðum" með leikskólanum, hann fór í gærmorgun og kemur aftur heim á morgun og honum fannst þetta voðalega spennandi að fara einn náttúrulega orðinn svo stór kall, ég verð að viðurkenna að það var mjög hljótt hérna í gær án hans en það er um að gera að bara njóta þess er það ekki ;)

Já og ég er búin að setja inn nýja skoðunarkönnun hérna til vinstri endilega kjósa.

MUNA AÐ SKOÐA MYNDBANDIÐ OG SEGJA MÉR HVAÐ YKKUR FINNST

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  36  Alls: 48921
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 680 dögum
flyt ég í stærri íbúð
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 443 dögum
þá er bara mánuður til jóla hahaha